3.6.2010 | 23:32
Enska
3.6.2010 | 16:13
Anna Frank - Enska
Myndband
Hérna er myndbandið með Önnu Frank:
Menntun og skóli | Breytt s.d. kl. 16:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.6.2010 | 04:57
tyrkjarán
Tyrkjarán-leikrit
Mér fannst mjög gott að við slepptum að skrifa í bók og myndskreyta heldur gerðum leikrit sem var alveg ágætt. Mér finnst við læra frekar mikið með því að gera leikrit en samt örugglega jafn mikið og hægt er að læra. Gallinn var að við vorum að gera atriðin aftur og aftur og gat maður orðið þreyttur á því. Það var líka svo misgóðir leikarar.
2.6.2010 | 04:51
Gæluverkefni
Gæluverkefni
Við áttum að gera gæluverkefni heima og áttum við að velja hvað sem er til að skrifa um. Ég valdi að gera um hunda, ketti og hesta í samfeldu máli en átti aðeins að velja sér eitthvað eitt. Við höfðum 4 vikur til að gera verkefnið en fyrsta vikan var aðallega til að hugsa og ræða við foreldra um hvað maður vildi gera. Þegar við vorum búin með verkefnið áttum við að gera kynningu. Mér finnst ekki gaman að fá að ráða alveg um hvað maður vill gera því þá veit maður veit ekki um hvað maður getur skrifað. Mér finnst verra að gera áætlun af þvi að ég er vön að læra kannski ekkert fyrstu dagana og svo helling næstu daga. Mér finnst stundum gott að hafa löng verkefni því það er svo leiðinlegt að vera alltaf að skipta um verkefni. Ég var ánægð með allt sem ég gerði í gæluverkefninu en var kynningin svo löng og erfitt að stytta textan.
2.6.2010 | 04:36
Danska
Danska
Við vorum í dönsku hjá Helgu kennara. Við vorum að læra úr þremur bókum þær eru klar parat a,b og c bók. Við höfum líka verið að vinna í nokkrum hópverkefnum þau eru matseðill, fjölskylda með persónulýsingum og spil. Við lærðum margt t.d. tölurnar, litina, persónulýsingar og margt fleira. Við lásum tvö hefti sem hétu en tur i zoo og i tivoli. Við glósuðum orð úr heftunum og svöruðum 15 spurningum úr hvoru. Mér fannst allt skemmtilegt en skemmtilegast var að gera hópverkefnin.
2.6.2010 | 04:10
Stærfræði
Stærfræði
Hringekja
Við höfum undanfarna daga verið í stærfræði hringekju fyrstu 2 tímana á föstudögum. Það var bara 7.bekkur þar sem hver og einn bekkur rúllaði á milli stofa. Við gerðum allskonar verkefni, mynstur, ljóð, þrautir og fleira. Mér fannst sum verkefnin leiðinleg og sum skemmtileg. Mér fannst leiðinlegt að við þurftum að rúlla á milli stofa. Mér fannst fínt að gera einstaka sinnum önnur verkefni en að gera alltaf það sama.Mér fannst oftast skemmtilegast hjá Önnu þar sem við gerðum alltaf mynstur og eitthvað stærðfræði föndur en það var frekar leiðinlegt að gera ljóð.Við gerðum erfiðustu verkefnin hjá Helgu þar sem hún er svo góð í stærðfræði. Við lærðum t.d. metrakerfið, þrautir, margföldunatöfluna, ferhyrninga af ýmsu tagi og margt annað.Við vorum oftast í tölvum hjá Auði inn á nams.is. Við gerðum líka ýmis dæmi sem voru stundum frekar erfið, við æfðum okkur t.d. í hugarreikningi og lærðum að reikna á talnalínu.
Menntun og skóli | Breytt s.d. kl. 04:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.6.2010 | 03:57
Náttúrufræði
2.6.2010 | 03:35
íslenska/samfélagsfr.
Menntun og skóli | Breytt s.d. kl. 03:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.6.2010 | 03:11
LANDAFRÆÐI
Landafræði
Í landafræði höfum við verið að læra um Evrópu. Við fengum lesbók og vinnuhefti sem við svöruðum spurningum úr. Þegar við lukum við heftið áttum við að velja okkur tvö lönd úr Evrópu. Við áttum að gera power point um eitt landið og photo story um hitt landið.
Ég byrjaði á að gera power point glærur um Albaníu. Fyrst fékk ég hefti með upplýsingum um Albaníu og blað sem var skipt í sirka 16 dálka. Ég strikaði undir það sem mér fannst skipta miklu máli og skrifaði síðan í hvern dálk það sem átti að vera á power point glærunum. Þegar ég var búin að því fór ég í tölvur og bjó til glærurnar. Þegar þær voru tilbúnar skreytti ég þær með myndum. Síðan bjó ég til kynningu og kynnti fyrir bekkinn.
Glærurnar um power point:
Menntun og skóli | Breytt s.d. kl. 03:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.12.2009 | 16:28
verk og list
Verk og list
Hreyfimyndagerð
Ég byrjaði í hreyfimyndagerð. Okkur var skipt í þrjá hópa eftir bekkjum ég var með Írisi, Helgu Jónu og Emilíu. við gerðum sögu sem hét birnirnir þrír. Við fengum fyrst tíma til að hugsa um það hvernig sögu við vildum gera. Við máttum semja sögu eða breyta ævintýri. Við ákváðum að breyta ævintýrinu grísirnir þrír yfir í birnirnir þrír. Þegar það var ákveðið fengum við blað með nokkrum reitum og línum fyrir neðan til að skrifa texta. Í staðinn fyrir úlfinn í grísunum þremur gerðum við draug sem hræddi birnina í burtu. Þegar við vorum búin að gera teiknimyndasöguna teiknuðum við persónurnar en þegar þær voru tilbúnar tókum við upp. Þegar við vorum að taka upp þurftum við að færa hægt og hægt persónurnar áfram leggja þær niður á bakrunnin í hverri stellingu og ýta á takkann. Þegar það var búið þurfti að klippa út atriði og laga myndina en þegar hún var tilbúin töluðum við inná hana og fíngerðum síðan alla myndina. Við vorum í hreyfimyndum hjá Bergljótu og var það mjög gaman en ég fékk stundum leið á því.
Tónmennt
Ég var í tónmennt hjá Halla eftir hreyfimyndagerð og gerði þar ýmislegt. Fyrst vorum við bara að teikna myndir tvisvar sinnum sungum við einu sinni fengum við bara að gera hvað sem er og svo þurftum við að gera ritgerð í hópum sem þurfti að vera 1-3 blaðsíður. En oft var Halli veikur eða gat ekki komið. Ég var með Birtu og Helgu Jónu að gera ritgerð við gerðum eina blaðsíðu sem var um Eminem. Mér fannst ekkert sérstakt í tónmennt þar sem ég gerði voðalega lítið.